17. desember 2025

Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,24 prósent í nóvember 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs mældist 126,7 stig og hækkaði um 0,24 prósent milli mánaða
  • Líkt og síðustu mánuði hægir enn frekar á hækkun vísitölu leiguverðs og nam 12 mánaða hækkun hennar 5,58 prósentum í nóvember
  • Markaðsleiga hækkaði um 1,81 prósent að raunvirði á milli nóvembermánaða 2024 og 2025, en sambærileg hækkun nam 2,26 prósent í október og 3,15 prósent í september

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 126,7 stig og hækkaði um 0,24 prósent á milli mánaða í nóvember. Á síðastliðnum 12 mánuðum hefur vísitalan hækkað um 5,58 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 3,7 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 2,65 prósent. Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs á að mæla markaðsleigu byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo nóvembergildi hennar tekur mið af leigusamningum í október og nóvember.

Dreg­ur úr tólf mán­aða hækk­un vísi­tölu leigu­verðs

Tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs lækkaði annan mánuðinn í röð en markaðsleiga hækkaði að nafnvirði um 5,6 prósent í nóvember, samanborið við 6,7 prósent í október, og 7,4 prósenta nafnverðshækkun á ársgrundvelli í september.

Til að tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs haldi áfram að lækka í desember þarf vísitalan að lækka meira en hún gerði milli nóvember 2024 og desember 2024 þegar hún lækkaði um 0,92% milli mánaða. Raunar hafa verðsveiflur vísitölunnar minnkað mikið á þessu ári en mánaðarleg breyting hennar hefur verið frá -0,41% upp í 1,33% það sem af er þessu ári, samanborið við -1,10% og upp í 3,19% í fyrra. Sé litið til síðustu ára hefur verðþrýstingur verið minni í desember samanborið við aðra mánuði á leigumarkaði.

Mæla­­­­­­borð fyr­­­­­­­ir vísi­­­­­­­töl­­­­­­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS