20. maí 2026

Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,70% í apríl

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs mældist 128,8 stig í apríl og hækkaði um 0,7 prósent á milli mánaða
  • Vísitalan hækkaði um 5,66 prósent milli aprílmánaða 2025 og 2026, á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent
  • Leiguverð hækkaði um 0,39 prósent að raunvirði undanfarið ár

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 128,8 stig í apríl og hækkaði um 0,7 prósent á milli mánaða. Vísitalan hefur hækkað um 5,66 prósent á undanförnum 12 mánuðum, á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent og íbúðaverð hækkaði um 2,15 prósent. Leiguverð hefur því hækkað lítillega að raunvirði undanfarna 12 mánuði, eða um 0,39 prósent.

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo aprílgildi hennar tekur mið af leigusamningum í mars og apríl.

Dreg­ur úr tólf mán­aða hækk­un vísi­tölu leigu­verðs

Tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs lækkaði milli mánaða og var 5,66 prósent í apríl en var en markaðsleiga hækkaði að nafnvirði um 6,32 prósent í mars. Til að tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs haldi áfram að lækka í maí þarf vísitalan að hækka minna en hún gerði milli apríl 2025 og maí 2025 þegar hún hækkaði um 1,15 prósent milli mánaða.

Mæla­­­­­­borð fyr­­­­­­­ir vísi­­­­­­­töl­­­­­­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Tilgangur leiguvísitölunnar er að endurspegla þróun á markaðsvirði leigu en vísitalan er ekki ætluð til vísitölubindingar á leigusamningum.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS