22. nóvember 2023

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu í október 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 238,7 stig í október 2023 (janúar 2011=100) og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan lækkað um 0,6% en síðastliðna 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,8%.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu byggir á þinglýstum leigusamningum. Hafa verður í huga að aðeins litlum hluta leigusamninga er þinglýst og því ekki víst að úrtakið gefi rétta mynd af þróun leiguverðs.

Leigu­skrá

Með breytingum á húsaleigulögum um áramótin var HMS falið að halda utan um rafræna skráningu leigusamninga. Er slík skráning nú forsenda þess að fá húsnæðisbætur, en áður var þinglýsingar leigusamnings að jafnaði krafist. Þinglýstum leigusamningum hefur því fækkað töluvert og þar með er enn meira hætta á að vísitala byggð á þinglýstum samningum gefi ekki rétta mynd af verðþróun líkt og HMS hefur bent á síðustu mánuði. Til að mynda byggði leiguvísitalan að meðaltali á 428 nýjum leigusamningum á mánuði árið 2022. Samningarnir voru 205 í september 2023 og 153 nú í október síðastliðinn.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS