16. júní 2026

Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,44 prósent á milli mánaða í maí 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð lækkaði um 0,44 prósent á milli mánaða í maí
  • Lækkun vísitölunnar í maí er drifin áfram af sérbýli á höfuðborgarsvæðinu sem sveiflast talsvert á milli mánaða
  • Íbúðaverð hefur hækkað talsvert umfram laun undanfarin misseri

Vísitala íbúðaverðs mældist 113,3 stig í maí og lækkaði því um 0,44 prósent á milli mánaða. Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,16 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,1 prósent. Íbúðaverð hefur því lækkað um 2,81 prósent að raunvirði síðastliðið ár, en þetta er tíundi mánuðurinn í röð sem íbúðaverð stendur í stað eða lækkar að raunvirði á ársgrundvelli.

Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.

Lækkun vísitölu íbúðaverðs er drifin áfram af sérbýli á höfuðborgarsvæðinu, en sú undirvísitala lækkaði um 1,91 prósent á milli mánaða í maí á meðan aðrar undirvísitölur hækkuðu lítillega á milli mánaða. Undirvísitalan fyrir sérbýli á höfuðborgarsvæðinu sveiflast þó talsvert á milli mánaða. Undanfarna tólf mánuði hefur sérbýli á höfuðborgarsvæðinu til að mynda hækkað litlu meira en aðrar undirvísitölur líkt og sjá má í töflunni hér að neðan.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir maí 2026

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð113,3-0,44%2,16%
Sérbýli á hbs.112,7-1,91%2,55%
Sérbýli á landsbyggð117,00,43%2,01%
Fjölbýli á hbs.111,50,27%2,48%
Fjölbýli á landsbyggð117,50,34%-0,25%

Laun hafa hækk­að tals­vert um­fram íbúða­verð und­an­far­ið*

Vísitala launa hækkaði um 6,4 prósent á milli aprílmánaða 2025 og 2026 sem er talsvert umfram hækkun íbúðaverðs á tímabilinu sem mældist 2,15 prósent. Íbúðaverð hefur raunar hækkað minna en laun frá því á haustmánuðum ársins 2024, en síðan þá hefur íbúðaverð sem hlutfall af launum farið lækkandi og er nú rúmlega 8 prósent  lægra en það var í ágúst 2024. Á myndinni hér að neðan má sjá tólf mánaða breytingu á íbúðaverði sem hlutfalli af launum en í apríl síðastliðnum hafði hlutfallið lækkað um 4 prósent á ársgrundvelli. Launavísitala Hagstofu fyrir maí verður gefin út 23. júní næstkomandi.

Mæla­­borð fyr­­ir vísi­­töl­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.

*Uppfært kl. 12:16. Í fyrri útgáfu stóð að íbúðaverð hefði hækkað talsvert umfram laun undanfarið í millifyrirsögn en hið rétta er að laun hafa hækkað talsvert umfram íbúðaverð. Önnur umfjöllun í fréttinni er óbreytt.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS