16. desember 2025

Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,35 prósent á milli mánaða í nóvember 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð lækkaði á milli mánaða í nóvember og vísitala íbúðaverðs mældist 112,4 stig
  • Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 2,65 prósent, en árshækkunin nam 3,87 prósentum í október
  • Íbúðaverð hefur lækkað að raunvirði fjórða mánuðinn í röð

Vísitala íbúðaverðs mældist 112,4 stig í nóvember og lækkaði um 0,35 prósent á milli mánaða. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 2,65 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 3,7 prósent. Íbúðaverð lækkaði því um 1 prósent að raunvirði á milli nóvembermánaða 2024 og 2025.

Á mynd hér að neðan má sjá mánaðarbreytingu vísitölu íbúðaverðs á síðustu mánuðum.

Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir nóv­em­ber 2025

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð112,4-0,35%2,65%
Sérbýli á hbs.113,6-0,35%3,09%
Sérbýli á landsbyggð113,8-1,04%1,88%
Fjölbýli á hbs.110,10,09%2,61%
Fjölbýli á landsbyggð116,2-1,36%2,56%

Íbúða­verð hef­ur lækk­að að raun­virði fjóra mán­uði í röð

Frá áramótum hefur hægt verulega á raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs sem mælist neikvæð fjórða mánuðinn í röð. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð á landsvísu lækkað um 1 prósent að raunvirði.

Allar undirvísitölur íbúðaverðs þ.e. undirvísitölur fyrir sérbýli og fjölbýli innan sem utan höfuðborgarsvæðisins, hafa einnig lækkað að raunvirði undanfarna 12 mánuði.

Á mynd hér að ofan má sjá 12 mánaða breytingu íbúðaverðs frá árinu 2021, ásamt verðbólguþróun. Líkt og myndin sýnir hefur hægt á 12 mánaða breytingu vísitölunnar á síðustu mánuðum, á meðan verðbólga hefur haldist nokkuð stöðug. Tólf mánaða hækkun vísitölunnar hefur verið á bilinu 2,2 til 4 prósent í haust en til samanburðar var tólf mánaða hækkun vísitölunnar á bilinu 8,7 til 10,6 prósent haustið 2024.

Mæla­borð fyr­ir vísi­töl­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggð. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS