17. maí 2018

Vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 5,4% síðustu 12 mánuði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var óbreytt milli mánaða í apríl samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár Íslands. Verð fjölbýlis stóð í stað milli mars og apríl en sérbýli hækkaði í verði um 0,2% milli mánaða. Vísitala íbúðaverðs hefur nú hækkað um 5,4% undanfarna 12 mánuði. Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki mælst minni síðan í mars 2013 eða í rúmlega fimm ár.

Raunverð íbúða, þ.e. vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu neysluverðs, var svo gott sem óbreytt milli mánaða í apríl en undanfarna 12 mánuði hefur það hækkað um 3,0%. 12 mánaða hækkunartaktur raunverðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu náði tímabundnu hámarki í 21,5% í maí 2017 en síðan síðasta sumar hefur verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu lítið breyst að raunvirði.

600 kaupsamningum um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í apríl. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var samtals 2.217 kaupsamningum þinglýst á svæðinu sem eru um 5% færri samningar en á sama tímabili í fyrra.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS