21. nóvember 2024
16. janúar 2024
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í desember 2023
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 994,1 í desember 2023 (janúar 1994=100) og hækkaði um 0,5 % á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,5%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,5%.
Sérbýlishluti vísitölunnar er 1026 stig í desember 2023 (janúar 1994=100) og hækkaði um 2,1% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 987,0 stig í desember 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði lítillega milli mánaða eða um 0,2 stig.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.
Forsendur
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu frá 1994.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS