17. september 2024

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4 prósent í ágúst

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð hækkaði um 10,8 prósent milli ágústmánaða 2023 og 2024, á sama tíma og verðbólga mældist 6 prósent
  • Hækkunin er drifin áfram af sérbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru 14 prósentum dýrari í ágúst en á sama tíma í fyrra
  • Raunverð íbúða hefur hækkað um 4,5 prósent á milli ágústmánaða 2023 og 2024, samanborið við 4,4 prósenta raunverðshækkun á ársgrundvelli í júlí

Vísitala íbúðaverðs mældist 108,7 stig í ágúst og hækkaði um 1,4 prósent á milli mánaða, sem er sama hækkun og var í maí og júní þegar vísitalan hækkaði einnig um 1,4 prósent milli mánaða. Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 10,8 prósent, sem er 4,5 prósent yfir 12 mánaða hækkun vísitölu neysluverðs.

Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaðahækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggð og á höfuðborgarsvæðinu.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­­ir ágúst 2024

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð108,71,4%10,8%
Sérbýli á hbs.109,52,2%14,4%
Sérbýli á landsbyggð110,41,3%8,9%
Fjölbýli á hbs.1070,9%8,5%
Fjölbýli á landsbyggð110,7-0,18%13,7%

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð. Einnig sýnir myndin undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024. Myndina má finna á hms.is/visitolur.

Raunverð íbúða hækkar um 4,5 prósent

Íbúðaverð heldur áfram að hækka umfram verðbólgu á landinu öllu en raunverðshækkun íbúðaverðs nam 4,5 prósentum í ágúst sem er álíka mikil og raunhækkun íbúðaverðs í júlí.

Mánaðarhækkun og árshækkun íbúðaverðs var mest hjá sérbýlum á höfuðborgarsvæðinu, en slíkt íbúðarhúsnæði hækkaði um 14,4 prósent á ársgrundvelli eða um 7,9 prósent að raunvirði á tímabilinu. Verð á íbúðum í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði minna á milli ára, eða um 8,5 prósent.

Íbúðaverð hækkaði álíka mikið á landsbyggðinni á milli ára og íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu. En á landsbyggðinni nam hækkun íbúðaverðs 10,2 prósent á ársgrundvelli þar sem verð á íbúðum í sérbýli hækkaði um 8,9 prósent á meðan verð á íbúðum í fjölbýli hækkaði um 13,7 prósent síðustu 12 mánuði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS