21. maí 2024

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,8 prósent í apríl

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Ný vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,8 prósent á milli mánaða í apríl og var mánaðarhækkunin sú sama og í síðasta mánuði
  • Íbúðaverð hækkaði umfram verðbólgu eftir raunverðslækkun 14 mánuði í röð
  • Vísitala fjölbýlis á landsbyggðinni hefur hækkað um 11,3 prósent á síðustu tólf mánuðum

Ný gæðaleiðrétt vísitala íbúðaverðs mældist 103,5 stig í mars og hækkaði um 0,8 prósent á milli mánaða. Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggð og á höfuðborgarsvæðinu.

Vísi­tala íbúða­verðs fyr­ir apr­íl 2024

VísitalaGildiBreyting á milli mánaða12 mánaða breyting
Íbúðaverð103,50,8%6,4%
Sérbýli á hbs.101,9-0,3%4,9%
Sérbýli á landsbyggð103,40,7%5,0%
Fjölbýli á hbs.104,31,6%7,2%
Fjölbýli á landsbyggð1060,5%11,3%

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun nýrrar vísitölu íbúðaverðs, ásamt undirvísitölum, frá janúar 2020. Einnig sýnir myndin eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð er á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrrar undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024. Myndina má finna á hms.is/visitolur.

Líkt og myndin og taflan hér að ofan sýna hækkaði vísitala íbúðaverðs um 6,4 prósent á milli aprílmánaða 2023 og 2024. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs hjá Hagstofunni um 6 prósent. Raunverð íbúða hefur því hækkað, þar sem íbúðaverð hækkaði umfram verðbólgu.

Þetta er í fyrsta skipti sem raunverð íbúða hækkar á ársgrundvelli í 15 mánuði, en frá febrúarmánuði árið 2023 hefur verðhækkun íbúða verið undir verðbólgu. Raunverðshækkun vísitölunnar á ársgrundvelli var 0,4 prósent í apríl, en til samanburðar lækkaði raunverð íbúða á ársgrundvelli um 1,6 prósent í mars.

Raunverðshækkunin er drifin áfram af fjölbýliseignum, en þær hækkuðu um 1,2 prósent umfram verðbólgu á höfuðborgarsvæðinu og 5,3 prósent umfram verðbólgu á landsbyggðinni á síðustu tólf mánuðum. Á sama tíma lækkaði raunverð sérbýlis um 1,1 prósent á höfuðborgarsvæðinu og 1 prósent á landsbyggðinni.

Hægt er að nálgast gildi nýju vísitalnanna frá janúar 2020 með því að smella á þennan hlekk.

Uppfært 22. maí kl. 09:42. Í fyrri útgáfu fréttarinnar stóð að vísitala íbúðaverðs væri 103,3 og að tólf mánaða hækkun hennar væri 6,3%. Hið rétta er að vísitalan er 103,5 og tólf mánaða hækkunin er 6,4%.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS