23. desember 2024
19. nóvember 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,18 prósent í október
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðaverð helst nokkuð stöðugt milli mánaða og hækkar um 0,18 prósent
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 8,7 prósent á milli októbermánaða 2023 og 2024, á sama tíma og verðbólga mældist 5,1 prósent
- Íbúðaverð hækkaði minna að raunvirði og nam 3,4 prósent í október, samanborið við 4,5 prósenta hækkun í ágúst og 3,9 prósent í september
Vísitala íbúðaverðs mældist 108,6 stig í október og hækkaði um 0,18 prósent á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,28 prósent í september. Vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 8,7 prósent á síðustu tólf mánuðum á sama tíma og verðbólga hefur mælst 5,1 prósent.
Mánaðarbreyting íbúðaverðs í október er mun minni en hún hefur verið síðastliðna 12 mánuði, en á því tímabili hefur íbúðaverð að meðaltali hækkað um 0,7 prósent á milli mánaða. Á mynd hér að neðan má sjá mánaðarbreytingu vísitölu íbúðaverðs á síðustu mánuðum.
Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.
Vísitala íbúðaverðs fyrir október 2024
Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
---|---|---|---|
Íbúðaverð | 108,6 | 0,18% | 8,71% |
Sérbýli á hbs. | 107,7 | 0,09% | 8,79% |
Sérbýli á landsbyggð | 113,1 | 0,18% | 8,96% |
Fjölbýli á hbs. | 107,0 | 0,28% | 8,52% |
Fjölbýli á landsbyggð | 110,5 | -0,09% | 8,55% |
Hægt hefur á raunverðshækkun íbúðaverðs
Íbúðaverð heldur áfram að hækka umfram verðlag á landinu öllu, en ekki eins mikið og í ágúst og september. Raunverðshækkun vísitölu íbúðaverðs á ársgrundvelli nam 3,5 prósentum í október en til samanburðar var tólf mánaða hækkun íbúðaverðs um 4,5 prósent að raunvirði í ágúst og 3,9 prósent að raunvirði í september. Árstaktur íbúðaverðs hefur verið umfram verðbólgu sjöunda mánuðinn í röð, í kjölfar 13 mánaða raunverðslækkunarskeiðs sem hófst í mars 2023.
Nýtt mælaborð fyrir vísitölur HMS
Nýtt mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er nú aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð. Einnig sýnir mælaborð undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS