16. apríl 2025
15. apríl 2025
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,36 prósent í mars 2025
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðaverð hækkaði á milli mánaða í mars og mældist 110,9 stig
- Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 7,98 prósent, en árshækkunin nam 8,4 prósent í febrúar
- Íbúðaverð hækkaði um 4,05 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í mars, samanborið við 4,06 prósenta raunverðshækkun í febrúar
Vísitala íbúðaverðs mældist 110,9 stig í mars og hækkaði um 0,36 prósent á milli mánaða. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 7,98 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 3,8 prósent.
Íbúðaverð helst nokkuð stöðugt annan mánuðinn í röð, en í febrúar síðastliðinn hækkaði íbúðaverð um 0,09 prósent á milli mánaða. Á mynd hér að neðan má sjá mánaðarbreytingu vísitölu íbúðaverðs á síðustu mánuðum.
Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.
Vísitala íbúðaverðs fyrir mars 2025
Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
---|---|---|---|
Íbúðaverð | 110,9 | 0,36% | 7,98% |
Sérbýli á hbs. | 110,9 | 1,56% | 8,51% |
Sérbýli á landsbyggð | 114,1 | 0,09% | 11,1% |
Fjölbýli á hbs. | 109,1 | -0,18% | 6,23% |
Fjölbýli á landsbyggð | 113,4 | -0,26% | 7,49% |
Stöðugar raunverðshækkanir íbúða
Á milli marsmánaða 2024 og 2025 hækkaði íbúðaverð um 4,05 prósent umfram almenna verðlagsþróun. Til samanburðar hækkaði raunverð íbúða um 4,06 prósent á milli febrúarmánaða 2024 og 2025. Raunverðshækkanir íbúða á ársgrundvelli hafa því haldist stöðugar á milli mánaða.
Mesta breytingin á milli mánaða var í undirvísitölu sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu, en hún hækkaði um 1,56 prósent í mars. Frá því í nóvember í fyrra hefur undirvísitalan hækkað og lækkað til skiptis á milli mánaða.
Undirvísitala fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu lækkaði hins vegar um 0,18 prósent í mars, eftir að hafa hækkað um 1,6 prósent í febrúar. Undirvísitalan hækkaði um 6,23 prósent á milli marsmánaða 2024 og 2025, en til samanburðar hækkaði hún um 7 prósent á milli febrúarmánaða og 7,6 prósent á milli janúarmánaða.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð.
Einnig sýnir mælaborðið undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS