17. mars 2025
18. mars 2025
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09 prósent í febrúar 2025
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Vísitala íbúðaverðs helst nokkuð stöðug á milli mánaða og hækkar um 0,09 prósent
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 8,4 prósent á milli febrúarmánaða 2024 og 2025, á sama tíma og verðbólga mældist 4,2 prósent
- Íbúðaverð hækkaði um 4,06 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í febrúar, samanborið við 5,5 prósenta raunverðshækkun í janúar
Vísitala íbúðaverðs mældist 110,5 stig í febrúar og hækkaði um 0,09 prósent á milli mánaða eftir að hafa hækkað um 1,5 prósent í janúar síðastliðnum. Á síðustu 12 mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 8,4 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 4,2 prósent.
Mánaðarbreyting íbúðaverðs í febrúar er mun minni en hún hefur verið síðastliðna 12 mánuði, en á því tímabili hefur mánaðarbreyting íbúðaverðs verið að meðaltali 0,7 prósent. Á mynd hér að neðan má sjá mánaðarbreytingu vísitölu íbúðaverðs á síðustu mánuðum.
Taflan hér að neðan sýnir vísitöluna, ásamt mánaðarhækkun hennar og 12 mánaða hækkun, auk fjögurra undirvísitalna fjölbýlis og sérbýlis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.
Vísitala íbúðaverðs fyrir febrúar 2025
Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
---|---|---|---|
Íbúðaverð | 110,5 | 0,09% | 8,4% |
Sérbýli á hbs. | 109,2 | -2,3% | 8,0% |
Sérbýli á landsbyggð | 114,0 | 1,4% | 12,4% |
Fjölbýli á hbs. | 109,3 | 1,6% | 7,1% |
Fjölbýli á landsbyggð | 113,7 | -1,1% | 6,9% |
Verð á fjölbýlum hækka á sama tíma og verð á sérbýlum lækka
Verð á fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði á milli mánaða í febrúar eftir að hafa haldist stöðugt síðustu mánuði. Mánaðarhækkun íbúðaverðs hjá fjölbýlum á höfuðborgarsvæðinu nam 1,6 prósent á milli mánaða í febrúar.
Á sama tíma lækkaði verð á sérbýlum á höfuðborgarsvæðinu í febrúar um 2,3 prósent á milli mánaða. Vísitala sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarið tekið töluverðum sveiflum á milli mánaða. Til að mynda lækkaði hún um 2,2 prósent á milli mánaða í desember síðastliðnum, en hækkaði svo um 3,7 prósent á milli mánaða í janúar.
Undirvísitölur fjölbýlis og sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu hafa hins vegar ekki hækkað jafn mikið á síðustu tólf mánuðum og vísitala íbúðaverðs. Á síðustu 12 mánuðum hefur sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 8 prósent og fjölbýli um 7,1 prósent.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggð.
Einnig sýnir mælaborðið undirvísitölur íbúðaverðs og eldri vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið 1994-2024 sem var birt á vef Fasteignaskrár, auk sameiginlegrar vísitölu, sem er byggð á eldri vísitölum íbúðaverðs fyrir tímabilið 1981-2024 og nýrri undirvísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og tekur gildið 100 í janúar 2024. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS