21. nóvember 2024
15. ágúst 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2023
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 959 í júlí 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði um 0,8% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,2%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 0,8%.
Sérbýlishluti vísitölunnar er 974,8 í júlí 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði um 2,8% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 956,6 í júlí 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði milli mánaða um 0,2%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.
Forsendur
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu frá 1994.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS