18. desember 2018

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 1% á milli mánaða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 1% á milli mánaða

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 1% á milli mánaða

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1% á milli mánaða samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands. Vísitala fjölbýlis hækkaði um 0,8% en vísitala sérbýlis um 1,7%. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs mælist nú 5,9% og tekur því dálítið stökk upp á við en 12 mánaða hækkun hennar mældist 4,1% í síðasta mánuði.

 Heimild: Þjóðskrá Íslands, hagdeild Íbúðalánasjóðs

Árshækkun raunverðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu eykst í fyrsta sinn í rúmlega ár

Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu neysluverðs, hækkaði örlítið á milli mánaða og hefur raunverð íbúða núna hækkað um tæplega 55% frá því í janúar 2013. Árshækkun raunverðs íbúða mælist nú 2,6% en 1,3% í síðasta mánuði og er þetta í fyrsta skipti í rúmt ár sem árshækkunin eykst milli mánaða en það gerðist síðast í september 2017.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS