21. nóvember 2024
20. desember 2022
Vísitala íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2022
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 957,2 í nóvember 2022 (janúar 1994=100) og lækkar um 0,3% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 20,3%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 957,2 í nóvember 2022 (janúar 1994=100) og lækkar um 0,3% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 20,3%.
Sérbýlishluti vísitölunnar er 974,8 í nóvember 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði um 1,2% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 953,6 í nóvember 2022 (janúar 1994=100) og lækkaði lítillega milli mánaða eða um 0,4 stig sem gera 0,04% lækkun.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um íbúðaverðsvísitöluna frá 1994.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS