21. nóvember 2024
17. október 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í september 2023
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 979,1 í september 2023 (janúar 1994=100) og hækkaði um 1,4 % á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,6%.
Sérbýlishluti vísitölunnar er 988,8 í september 2023 (janúar 1994=100) og hækkaði um 1,6% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 978,9 í september 2023 (janúar 1994=100) og hækkaði milli mánaða um 1,4%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.
Forsendur
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu frá 1994.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS