18. júlí 2023

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í júní 2023

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 966,4 í júní 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði um 1,1% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,7%.

Sérbýlishluti vísitölunnar er 1003,3 í júní 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði um 0,9% milli mánaða og fjölbýlishluti vísitölunnar er 958,1 í júní 2023 (janúar 1994=100) og lækkaði milli mánaða um 1,1%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.

 

For­­send­­ur

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um gögn um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu frá 1994.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS