18. október 2022

Vísitala íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í september 2022

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 954,7 stig í september 2022 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,8% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,5%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 22,5%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu er 954.7 í September 2022 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,8% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,5%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 22,5%

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Stuðst er við kaupsamninga síðastliðinna þriggja mánaða við útreikning vísitölunnar.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis eftir að útgildi hafa verið hreinsuð út. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hægt er að nálgast upplýsingar á um vísitöluna í Fasteignagátt Þjóðskrár og gögn á bak við íbúðarverðsvísitöluna er hér.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS