8. maí 2025
28. janúar 2022
Veruleg hækkun á meðalkaupverði íbúða á höfuðborgarsvæðinu
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Meðalkaupverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu var 68,2 m.kr. í desember sl. samanborið við 65,4 m.kr. í nóvember og 63,2 m.kr. í október. Meðalkaupverð hefur því hækkað um 5 m.kr. á aðeins tveimur mánuðum. Í desember 2020 var meðalkaupverðið 50,5 m.kr. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins var meðalkaupverðið 46,2 m.kr. í desember sl. samanborið við 43,3 m.kr. í október.

Meðalkaupverð getur hækkað annars vegar ef íbúðaverð hækkar almennt eða ef íbúðir sem seljast eru dýrari t.d. vegna þess að þeir eru af meiri gæðum en áður. Lítið framboð er af ódýrum íbúðum sem gæti útskýrt að hluta af hverju meðalkaupverð hefur hækkað svo mikið.
Miðgildi kaupverðs á höfuðborgarsvæðinu er þó mun lægra eða um 54 m.kr. sem þýðir að helmingur íbúða í desember hafi verið keyptar á eða undir því verði.
Breytingin sem hefur átt sér stað undanfarna tvo mánuði felst í að nú eru mun fleiri íbúðir en áður sem seljast á 70-95 m.kr. og mun færri sem seljast á 40-55 m.kr. Þá seldust 24 íbúðir á eða yfir 120 m.kr. í desember en 15 í október og hefur því fjölgað um 60%.
Meðfylgjandi mynd sýnir dreifingu kaupverðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu, annars vegar í október og hins vegar í desember 2021. Þar sést annars vegar hvernig verulega stærra hlutfall seldra eigna var á verðbilinu 70-100 milljónir í desember en október og einnig eru talsvert fleiri eignir sem seldar voru á hærra verði en 140 milljónir.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS