22. júlí 2020

Verðþróun íbúða í sérbýli leiðir verðhækkanir á höfuðborgarsvæðinu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,2% á milli maí og júní samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs mælist nú 3,8% sem er sami 12 mánaða hækkunartaktur og í maímánuði en var um 3,2% í júní í fyrra.

Verð fjölbýlis lækkaði um 0,5% milli maí og júní en hins vegar mælist um 2,5% hækkun á milli mánaða á íbúðum í sérbýli. Verð fjölbýlis hefur hækkað um 3,6% frá júní í fyrra samanborið við 4,5% í maí og 3,4% í júní 2019. Tólf mánaða hækkun sérbýlis mælist nú um 4,3%, samanborið við 1,3% í maí og 1,8% í júnímánuði í fyrra. 

Raunverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu (þ.e. vísitala íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu neysluverðs) lækkaði um 0,3% milli mánaða en líkt og verið hefur frá því í nóvember í fyrra mælist raunverðshækkun á milli ára. Nánar tiltekið mælist nú um 1,2% hækkun í vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, að teknu tilliti til verðbólgu, frá sama mánuði 2019.

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur frá miðju ári 2017 þróast ögn hægar en hin almenna launaþróun í landinu eftir nokkuð snarpar verðhækkanir frá síðri hluta árs 2016 og fram á mitt ár 2017. Á meðfylgjandi mynd hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs í hlutfalli við vísitölu launa en á undanförnu ári hafa laun almennt hækkað um 2,7% umfram íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS