13. maí 2025
17. mars 2021
Verð á sérbýli lækkar annan mánuðinn í röð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala Þjóðskrár fyrir íbúðaverð hækkaði um 0,6% á milli mánaða í febrúar frá fyrri mánuði. Þar af hækkaði verð á íbúðum í fjölbýli um 0,9% á meðan það lækkaði um 0,6% fyrir sérbýli. Þetta er annan mánuðinn í röð sem verð sérbýlum lækkar á milli mánaða sem vekur athygli í ljósi þess að tiltölulega lítið framboð er af íbúðum í sérbýli.

Ef litið er á ásett verð á því sérbýli sem skráð var til sölu í febrúar þá kemur í ljós að verðið hækkaði um heil 4,6% á milli mánaða. Þetta mælir vísitala ásetts verðs sem hagdeild HMS heldur úti. Frá árinu 2013 hefur verð á sérbýli hækkað um 82% en verð á íbúðum í fjölbýli um 100%.
Á seinustu 12 mánuðum hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 7,3%, þar af hafa íbúðir í fjölbýli hækkað um 7,2% og íbúðir í sérbýli um 6,3%. Þannig hefur hækkunartaktur íbúðaverðs verið að lækka fyrir sérbýli en hefur haldist svipaður fyrir fjölbýli.
Þótt íbúðaverð hafi hækkað þó nokkuð á síðustu 12 mánuðum þá eru þetta tiltölulega hóflegar hækkanir í sögulegu samhengi en íbúðaverð á Íslandi hefur sveiflast töluvert í gegnum tíðina eins og myndin hér að neðan sýnir glögglega. Í ágúst 2005 nam tólf mánaða hækkun vísitölunnar rúmlega 40% og júlí 2009 var um að ræða lækkun uppá ríflega 11%. Eftir efnahagshrunið 2008 var hækkunin mest í maí 2017 eða 24% á 12 mánuðum. Þá hafa verðsveiflur verið nokkuð meiri í tilfelli sérbýla.
Annað sem vekur athygli er að það er mikill munur á hækkun söluverðs og hækkun ásetts verðs á meðal sérbýla en ásetta verðið hefur hækkað um 15% í febrúar miðað við febrúar í fyrra. Það gefur til kynna að mögulega séu talsverðar hækkanir í kortunum fyrir sérbýlin þegar íbúðir sem nú eru settar á sölu seljast.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS