29. júlí 2024

Velta með atvinnuhúsnæði dregst saman á milli mánaða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Heildarvelta kaupsamninga um atvinnuhúsnæði nam 6,7 milljörðum króna í júní síðastliðnum, sem er 17 prósentum minni en veltan í maímánuði og 17 prósentum minni en meðalvelta með slíka kaupsamninga á fyrstu fimm mánuðum ársins. Þetta kemur fram í mánaðarlegum tölum HMS um veltu með atvinnuhúsnæði, sem nálgast má hér að neðan.

Mánaðartölur um veltu um atvinnuhúsnæði

Þinglýstir kaupsamningar um atvinnuhúsnæði voru alls 106 talsins í júnímánuði, samanborið við 108 samninga í maí. Af 106 samningum var 53 þeirra þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og jafnmörgum þinglýst utan höfuðborgarsvæðisins.

Kaup­verð rúm­lega þrefalt hærra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Heildarveltan með atvinnuhúsnæði var hins vegar rúmlega þrefalt meiri innan höfuðborgarsvæðisins heldur en á landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu nam veltan með atvinnuhúsnæði um 5,1 milljörðum króna, en á landsbyggðinni nam hún 1,6 milljörðum króna. Meðalkaupverð atvinnuhúsnæðis var því 96 milljónir króna á höfuðborgarsvæðinu, en 29 milljónir króna utan höfuðborgarsvæðisins.

Mán­að­ar­leg­ur fjöldi kaup­samn­inga um at­vinnu­hús­næði 2020-2024

Á myndinni hér að ofan má sjá mánaðartölur yfir fjölda kaupsamninga um atvinnuhúsnæði á landinu öllu, höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu frá ársbyrjun 2020. Þar sést að fjöldi kaupsamninga í júní er svipaður og á sama tímabili á árunum 2021, 2022 og 2023.

Hægt er að nálgast mánaðarlegar tölur um fjölda kaupsamninga á íbúðarhúsnæði sem og öðru húsnæði eftir sveitarfélögum, landshlutum og fjölda kaupenda með því að smella á þennan hlekk.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS