26. september 2024

Velta kaupsamninga um atvinnuhúsnæði dróst saman í ágúst

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Velta kaupsamninga um atvinnuhúsnæði dróst saman um 33 prósent milli mánaða í ágúst, þrátt fyrir að fjöldinn helst óbreyttur
  • Kaupsamningum fækkar á höfuðborgarsvæðinu milli mánaða á sama tíma og þeim fjölgar utan höfuðborgarsvæðisins
  • Kaupverð atvinnuhúsnæðis var að meðaltali 49,4 milljónir í ágúst, sem er 33 prósentum lægra en í júlí

Heildarvelta kaupsamninga um atvinnuhúsnæði nam 4,54 milljörðum króna í ágúst, sem er 33 prósentum minni en velta júlímánaðar. Hins vegar hækkar velta slíkra samninga um 12 prósent milli ágústmánaða 2023 og 2024 á föstu verðlagi. Þetta kemur fram í mánaðarlegum tölum HMS um veltu með atvinnuhúsnæði, sem nálgast má hér að neðan.

Mánaðartölur um veltu um atvinnuhúsnæði

Mánaðartölur um veltu um atvinnuhúsnæði

Þinglýstir kaupsamningar um atvinnuhúsnæði voru alls 92 talsins í ágúst, sem er sami fjöldi og var í júlí. Fleiri samningum var þinglýst utan höfuðborgarsvæðisins, eða 52 talsins á meðan 40 samningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu.

Mánaðarlegur fjöldi kaupsamninga um atvinnuhúsnæði 2020-2024

Á myndinni hér að ofan má sjá mánaðartölur yfir fjölda kaupsamninga um atvinnuhúsnæði á landinu öllu, höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu frá ársbyrjun 2020.

Ódýr­ari við­skipti með at­vinnu­hús­næði í ágúst

Velta með atvinnuhúsnæði nam 3,18 milljörðum króna á höfuðborgarsvæðinu og 1,36 milljörðum króna á landsbyggðinni í ágúst. Meðalkaupverð atvinnuhúsnæðis var því 26,2 milljónir króna á landsbyggðinni, sem er 38 prósent lægra en í júlí á föstu verðlagi. Meðalkaupverð atvinnuhúsnæðis var 79,5 milljónir króna á höfuðborgarsvæðinu og lækkar um 19 prósent milli mánaða á föstu verðlagi.

Hægt er að nálgast mánaðarlegar tölur um fjölda kaupsamninga á íbúðarhúsnæði sem og öðru húsnæði eftir sveitarfélögum, landshlutum og fjölda kaupenda með því að smella á þennan hlekk. Ný kaupverðsjá er einnig aðgengileg á vefsíðu HMS með því að smella á þennan hlekk, en þar er hægt að skoða upplýsingar um kaupsamninga eftir byggingarári, fermetrafjölda, tegund og staðsetningu fasteigna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS