Velta eykst á íbúðamarkaði á milli ára

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Heildarvelta á íbúðamarkaði nam 83,4 milljörðum króna í mars og er hún með því mesta sem hefur sést á íbúðamarkaði í marsmánuði undanfarin ár, en kaupsamningum um nýtt húsnæði hefur fjölgað á sama tíma. Þetta kemur fram í upplýsingum sem HMS hefur unnið úr kaupsamningum fasteigna.

Mesta velta frá ár­inu 2021

Líkt og HMS greindi frá í síðustu mánaðarskýrslu sinn hefur veltan á fasteignamarkaði ekki verið meiri undanfarin ár í marsmánuði ef frá er talið 2021, en á þeim tíma voru sögulega lágir vextir í boði fyrir fasteignakaupendur. Veltan var sérstaklega mikil í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, en hún jókst einnig á milli marsmánaða 2023 og 2024 í öðrum landshlutum, þrátt fyrir að leiðrétt sé fyrir verðbólgu.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins nam heildarveltan 204,6 milljörðum króna. Veltan er 35 prósentum en hún var á sama tíma í fyrra á föstu verðlagi og hefur vaxið milli mánaða á árinu, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Fleiri nýj­ar íbúð­ir selj­ast en í fyrra

Ein skýring aukinnar veltu er að fleiri kaupsamningar voru gerðir um nýtt íbúðarhúsnæði. Alls voru gerðir 591 kaupsamningur um nýtt íbúðarhúsnæði á landinu öllu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en samningarnir voru 329 á sama tímabili í fyrra.

Á höfuðborgarsvæðinu voru gerðir 325 kaupsamningar um nýtt íbúðarhúsnæði, í nágrenni þess 226 og 40 voru gerðir annars staðar á landinu. Hlutdeild kaupsamninga um nýtt húsnæði var hæst í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en alls nam hún 37 prósentum þar. Til samanburðar var hlutdeild nýs húsnæðis í kaupsamningum 25 prósent á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS