8. maí 2025
7. mars 2024
Útgáfuhóf: Vegvísir um mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS efnir til hófs í tilefni af útgáfu á Vegvísi að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar næsta þriðjudag. Viðburðurinn fer fram þann 12. mars, kl. 12-13 í Borgartúni, en honum verður einnig streymt á netinu.
Vegvísir um mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar
Öflugar og samfelldar mannvirkjarannsóknir eru mikilvægar fyrir mannvirkjageirann og samfélagið allt. Á sama tíma heyrist ákall um aukið fjármagn og skýrara skipulag þegar kemur að sjálfu rannsóknaumhverfi mannvirkjageirans.
Vegvísinum er ætlað að varða leiðina næstu 12 til 24 mánuðina svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um framtíðarskipan málaflokksins. Niðurstöðurnar byggja meðal annars á samtölum við hátt í 70 hagaðila, aðgerð 9 í hönnunarstefnu, aðgerð 2.9. í hvítbók húsnæðisstefnu og breiðu samráði við stjórnvöld, háskólasamfélag og mannvirkjageirann.
Eftirfarandi munu koma fram á fundinum:
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.
- Sérfræðingar HMS kynna Vegvísi að mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar.
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
- Sunna Ólafsdóttir Wallevik, stofnandi og framkvæmdastjóri Gerosion.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS