13. maí 2025
26. janúar 2022
Varhugaverð Bling snuð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning frá vefversluninni snidugargjafir.is um að sölu hafi verið hætt á Bling snuðum. Ástæðan er sú að snuðin uppfylla ekki lágmarkskröfur um öryggi. Það er ekki hægt að sótthreinsa snuðin fyrir fyrstu notkun né þrífa þau almennt. Þá kemur ekki fram fyrir hvaða aldur snuðin eru, en það skipt máli þar sem stærð og lögun túttunnar á snuðinu er breytileg eftir aldri barns. Auk þess getur verið hætta er á að steinarnir detti af snuðinu sem getur verið hættulegt ef börn setja þá upp í sig.

Það er ekki vitað um aðra aðila sem hafa selt þessi snuð á Íslandi en þau gætu hafa verið keypt á erlendum sölusíðum. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur ekki fengið tilkynningar um slys af völdum snuðanna en við hvetjum forráðamenn til að taka snuðin úr notkun.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS