17. desember 2021

Útvistun á rekstri faggiltrar mælifræðistofu og faggiltrar kvörðunarþjónustu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfrækir nú faggilta mælifræðistofu og faggilta kvörðunarþjónustu á grundvelli VIII. kafla laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfrækir nú faggilta mælifræðistofu og faggilta kvörðunarþjónustu á grundvelli VIII. kafla laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

Hefur stofnunin hafið undirbúning að því að útvista rekstri faggiltrar mælifræðistofu og faggiltrar kvörðunarþjónustu.

Vegna þessa er óskað eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstur faggiltrar kvörðunarþjónustu eða tryggja aðgang að slíkri þjónustu þar sem öllum sem þess óska verður veittur aðgangur að rekjanlegum kvörðum og faggiltri kvörðunarþjónustu auk þess að framkvæma almennar, ófaggiltrar kvarðanir og löggildingar.

Einungis kemur til greina að semja við aðila sem hefur reynslu og víðtæka þekkingu af rekstri faggiltrar mælifræðistofu og/eða faggiltri kvörðunarþjónustu.

Gert er ráð fyrir því að sá aðili sem samið verður við taki yfir tímabundinn leigusamning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um 307 m2 húsnæði á jarðhæð að Borgartúni 21, þar sem mælifræðistofa stofnunarinnar er nú starfrækt. Jafnframt er gert ráð fyrir að sá aðili sem samið verður við skuldbindi sig til að bjóða þeim starfsmönnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem starfa við mælifræðistofu og faggilta kvörðunarþjónustu starf. Þá er gerð krafa um að sá aðili sem gengið verður til samninga við taki á leigu þau tæki sem eru á mælifræðistofu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Johann.Olafsson@hms.is.

Óskað er eftir því að umsóknir berist til Landslaga slf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík eða á netfangið aslaug@landslog.is eigi síðar en 6. janúar 2022.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS