16. maí 2022

Útskrift slökkviliðsmanna hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nú á dögunum fengu 10 starfsmenn Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar afhent prófskírteini  lokinna námskeiða við Brunamálaskóla HMS, en þeir höfðu ný lokið bóklegum og verklegum hluta námskeiða sem ætluð eru fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn, samtals 170 kennslustundir og útskrifast því sem fullnuma slökkviliðsmenn.

Að þessum námskeiðum loknum teljast einstaklingar m.a. hæfir til slökkvistarfa utan- og innanhúss þ.m.t. reykköfun, hafa þekkingu á eðli elds og þróun innanhúsbruna, hæfir til björgunar á fastklemmdum einstaklingum og hæfir til að beita réttum viðbrögðum við mengunar- og eiturefnaslysum. En allir þessir þættir eru hluti lögbundina verkefna slökkviliða.

HMS vill óska slökkviliðsmönnunum til hamingju með áfangann og sömuleiðis Slökkviliði Akraness- og Hvalfjarðarsveitar með áframhaldandi styrkingu á útkallsliði sínu.

Ljósmynd fengin af vef Skessuhorns.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS