18. desember 2024
13. desember 2024
Úthlutun úr Fræðslusjóði brunamála árið 2024
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS hefur í samráði við úthlutunarnefnd Fræðslusjóðs brunamála úthlutað styrkjum ársins 2024, samtals að fjárhæð 14.000.000 kr.
Sjóðurinn var stofnaður með reglugerð um fræðslusjóð brunamála árið 1993 samkvæmt þágildandi lögum um brunavarnir og fór fyrsta úthlutun fram ári síðar. Í takt við tíð og tíma hefur markmið sjóðsins þróast frá áherslum á námstyrki í víðtækari uppbyggingu fagþekkingar á sviði brunamála og eru því áherslur Fræðslusjóðs brunamála að styrkjum til rannsókna og þróunarverkefna vegna brunavarna í samræmi við núgildandi reglugerð nr. 1600/2022 og er fjármagnaður af rekstrafé HMS.
Umsóknir árið 2024 voru 16 talsins og var samanlögð umsóknarfjárhæð um 62 milljónir kr. Af þeim voru sjö umsóknir sem hlutu hljómgrunn úthlutunarnefndar, vegna verkefna á sviði brunavarna og slökkvistarfs og voru þær samþykktar af forstjóra HMS.
Úthlutaðir styrkir voru eftirfarandi:
Umsækjandi | Verkefni | Úthlutunarfjárhæð |
---|---|---|
Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna | Stjórnendafræðsla slökkviliða | 750.000 kr. |
Sævar Berg Sigurðsson | Stafrænt reykköfunarborð | 1.950.000 kr. |
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins | Forvarnastarf fyrir leikskólabörn | 3.300.000 kr. |
Slökkvilið Norðurþings | Uppbygging á æfingasvæði | 1.500.000 kr. |
Slökkvilið Akureyrar | Uppbygging á æfingasvæði | 1.500.000 kr. |
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins | Námsefnisgerð fyrir slökkvilið | 4.000.000 kr. |
Slökkvilið Fjallabyggðar | Æfinga- og þjálfunarbúnaður | 1.000.000 kr. |
Samtals: | 14.000.000 kr. |
Úthlutunarnefnd sjóðsins var skipuð aðilum frá Félagi slökkviliðsstjóra, Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Brunatæknifélagi Íslands ásamt HMS. Nefndin mat umsóknir og skilaði tillögu að úthlutun til forstjóra HMS í samræmi við verklagsreglu sem nefndin starfar eftir. Verklagsreglan byggir á stigagjöf þar sem verkefni eru metin m.t.t. mikilvægi, gæða og áhrifa verkefnis.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS