1. júlí 2026
1. júlí 2026
Úthlutun hlutdeildarlána í júní
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var umfram það fjármagn sem var til úthlutunar í júní
- Alls uppfylltu 43 umsóknir skilyrði til úthlutunar en 33 umsóknir voru dregnar út
- Næsta umsóknartímabil hlutdeildarlána hefst 2. júlí
HMS hefur lokið við úthlutun hlutdeildarlána í júní en alls voru 68 umsóknir til yfirferðar, þar af 34 umsóknir sem bárust í fyrri mánuðum ársins.
Í júní voru að lágmarki 458 milljónir króna til úthlutunar en heildarfjárhæð umsókna nam um 1.091 milljón króna. Eftir yfirferð umsókna reyndust 43 umsóknir uppfylla öll skilyrði til úthlutunar. Heildarfjárhæð þeirra umsókna nam um 618 milljónum króna.
Þar sem fjárhæð umsókna sem uppfylltu skilyrði var umfram það fjármagn sem var til úthlutunar þurfti að velja umsóknir af handahófi, í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem grípa þarf til slíks fyrirkomulags.
Alls voru 33 umsóknir dregnar út í viðurvist fulltrúa Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Heildarfjárhæð úthlutaðra hlutdeildarlána nam um 479 milljónum króna. Samtals hlutu því 10 umsóknir ekki úthlutun í júní þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði. Öllum þeim umsækjendum var boðið að halda umsókn sinni opinni og færa hana yfir í úthlutun í júlí.
Í töflunni hér að neðan má sjá fjölda og fjárhæðir veittra hlutdeildarlána eftir landshlutum í júní.
Opnað fyrir umsóknir 2. júlí
Umsóknartímabilið fyrir næstu úthlutun hlutdeildarlána stendur frá kl. 09:00 fimmtudaginn 2. júlí og til 12:00 mánudaginn 13. júlí næstkomandi. Til úthlutunar verða að lágmarki 458 milljónir króna.
Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




