4. maí 2026

Úthlutun hlutdeildarlána í apríl

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var verulega umfram fjármagn sem var til úthlutunar 
  • Tæplega helmingur hlutdeildarlána í apríl voru til kaupa á íbúðum í Reykjavík 
  • Velja þurfti umsóknir sem uppfylltu skilyrði til lánveitingar af handahófi annan mánuðinn í röð

HMS hefur lokið úthlutun hlutdeildarlána í apríl. Alls voru 83 umsóknir teknar til yfirferðar, þar af hluti sem barst í fyrri mánuðum, og voru langflestar þar sem umsækjendur voru með samþykkt kauptilboð í fasteign. 

Líkt og áður voru að lágmarki 458 milljónir króna til úthlutunar en sótt var um hlutdeildarlán fyrir um 1.388 milljónir króna. Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var því aftur umfram það fjármagn sem stendur til boða í mánuðinum. 

Eftir yfirferð umsókna voru 58 umsóknir sem uppfylltu öll skilyrði til úthlutunar en heildarfjárhæð þeirra umsókna var um 869 milljónir króna. Af þeim sökum þurfti að velja umsóknir sem uppfylltu öll skilyrði af handahófi til að skera úr um hvaða umsækjendur fengju úthlutun og er það í annað skiptið í röð þar sem því fyrirkomulagi er beitt. 

Umsækjendur með samþykkt kauptilboð njóta forgangs að hlutdeildarlánum umfram þá sem ekki hafa fengið slíkt tilboð. Þá er jafnframt miðað við að HMS úthluti að minnsta kosti 20% hlutdeildarlána til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. 

Alls voru 33 umsóknir dregnar út af fulltrúa Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Heildarfjárhæð úthlutaðra lána nam um 472 milljónum króna. Samtals hlutu því 25 umsóknir ekki úthlutun í apríl þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði og var öllum þeim umsækjendum boðið að halda umsókn sinni opinni og færa hana yfir í úthlutun maímánaðar. 

Í töflunni hér að neðan má sjá fjölda og fjárhæðir veittra hlutdeildarlána eftir landshlutum í apríl. 

Opið er fyrir umsóknir vegna úthlutunar í maí 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um hlutdeildarlán vegna úthlutunar í maí og mun umsóknartímabilið standa til kl. 12:00 þann 15. maí næstkomandi. Til úthlutunar fyrir tímabilið verða að lágmarki 458 milljónir króna. 

Hlutdeildarlán

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS