20. maí 2025
3. júní 2021
Úthluta ríflega 1,9 milljarði króna í stofnframlög
Stofnframlögin verða nýtt til byggingar og kaupa á 266 hagkvæmum leiguíbúðum
- Stofnframlögin verða nýtt til byggingar og kaupa á 266 hagkvæmum leiguíbúðum
- Úthlutunin felur í sér heildarfjárfestingu á fasteignamarkaði upp á rúma 10 milljarða
- HMS hefur úthlutað ríflega 17,2 milljörðum króna í stofnframlög á síðustu 5 árum
- Alls búa 900 fjölskyldur nú í íbúðum sem byggðar voru með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga og lokið hefur verið við á síðustu 2 árum. 2.000 íbúðir í viðbót á leiðinni.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) úthlutaði í vikunni ríflega 1,9 milljarði króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 266 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið. Leiguíbúðirnar dreifast á níu sveitarfélög en meginþorrinn er á höfuðborgarsvæðinu. Fjármununum er ætlað að styðja við framboð hagkvæmra leiguíbúða fyrir tekjulága og verða nýttir til byggingar á 144 íbúðum og kaupa á 138 nýjum og eldri íbúðum.
Heildarfjárfesting ríflega 10 milljarðar króna
Stofnvirði þeirra verkefna sem samþykkt voru í þessari síðustu úthlutun fela í sér fjárfestingu á húsnæðismarkaði upp á ríflega 10 milljarða króna. Þar af fara fimm milljarðar í uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og fimm milljarðar í kaup. Langstærstur hluti þeirra umsókna sem samþykktar voru nú eru vegna kaupa á íbúðum úr nýbyggingum. Gerð er krafa um að þetta séu hagkvæmar íbúðir og eru stjórnvöld með þessu að skapa hvata fyrir aukið framboð slíkra íbúða.
Fjöldi íbúa þegar fluttur inn í leiguíbúðir í almenna kerfinuÁ síðustu fimm árum hefur HMS úthlutað ríflega 17,2 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á tæplega 2.900 almennum íbúðum fyrir hönd ríkissjóðs. Alls búa 900 fjölskyldur nú í íbúðum sem byggðar voru með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga, og lokið hefur verið við á síðustu 2 árum, en um 2.000 íbúðir eru enn á byggingarstigi.
Hermann Jónasson, forstjóri HMS: „Áframhaldandi uppbygging almenna íbúðakerfisins er mikilvæg en með því náum við að lækka húsnæðiskostnað tekjulægri leigjenda og skapa sterkari umgjörð um leigumarkaðinn á Íslandi. Á sama tíma er áhersla á nýbyggingar sem er að okkar mati nauðsynleg núna þegar vísbendingar eru um að töluvert vanti af íbúðum til þess að mæta undirliggjandi þörf og afar ánægjulegt að vita til þess að þær íbúðir sem koma nýjar á markað í gegnum almenna íbúðakerfið eru sérstaklega til þess að auk auka húsnæðisöryggi leigjenda.