23. apríl 2025
23. nóvember 2022
Útgáfa kaupskrár fasteigna og leiguskrár íbúðarhúsnæðis á vefum fasteignaskra.is
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Nú eru gögn sem innihalda kaupskrá fasteigna og leiguskrá íbúðarhúsnæðis aðgengileg á vefnum fasteignaskra.is
Kaupskrá fasteigna inniheldur upplýsingar sem HMS skráir upp úr þinglýstum kaupsamningum. Þar má meðal annars finna upplýsingar um kaupverð, dagsetningu kaupsamnings og staðsetningu fasteignar. Kaupsamningar geta verið um íbúðarhúsnæði, sumarhús eða atvinnuhúsnæði.
Leiguskrá íbúðarhúsnæðis inniheldur upplýsingar sem HMS skráir upp úr þinglýstum leigusamningum íbúðarhúsnæðis. Þar má meðal annars finna upplýsingar um leiguverð, gildistíma leigusamnings og staðsetningu leiguhúsnæðis. Þess ber þó að geta að ekki er öllum leigusamningum þinglýst og inniheldur leiguskráin því aðeins hluta af öllum leigusamningum um íbúðarhúsnæði.
Gögnin eru uppfærð mánaðarlega eftir skráningu og yfirferð. Útgáfa kaupskrár miðast við 22. hvers mánaðar eða fyrsta virka dag eftir það.
HMS ber ekki ábyrgð á notkun upplýsinganna af hálfu þriðja aðila.
Gögnin má nálgast hér.
Vefur fasteignaskrár
Í fasteignaskrá er að finna upplýsingar um stærðir landeigna og mannvirkja, upplýsingar um byggingarefni og lýsingu á viðkomandi mannvirki, auk fasteigna- og brunabótamats.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS