23. maí 2025
11. mars 2024
Úrræði vegna íbúðalána Grindvíkinga framlengd
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur ákveðið að framlengja þau úrræði sem Grindvíkingum hefur staðið til boða vegna íbúðalána fasteigna í Grindavík. Samþykkt hefur verið áhframhaldandi niðurfelling vaxta og verðbóta til næstu þriggja mánaða. Nýja tímabilið nær til vaxta og verðbóta vegna febrúar, mars og apríl.
Einnig geta íbúðaeigendur í Grindavík sótt um allt að 12 mánaða greiðsluhlé á afborgunum íbúðalána fasteigna í bænum. Umsókn um greiðsluhlé má finna með því að smella á þennan hlekk.
Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við HMS í síma 440 6400 eða senda tölvupóst á hms@hms.is.