23. júní 2025
1. október 2021
Upptaka af ráðstefnunni Nordic Climate Forum for Construction
Ráðstefnan Nordic Climate Forum for Construction 2021 var haldin þann 27. september á netinu
Ráðstefnan Nordic Climate Forum for Construction 2021 var haldin þann 27. september á netinu
Ráðstefnan er hluti af lykilverkefnum samstarfs milli Norðurlandanna um samræmingu á byggingarreglugerð varðandi loftslagsmál en hún hefur verið haldin árlega frá árinu 2019. Ráðstefnan var fyrst haldin í Malmö árið 2019 og síðan í vefútgáfu árið 2020 í Kaupmannahöfn. Í ár er komið að Íslandi að halda viðburðinn og var ráðstefnan haldin þann 27.september seinastliðin í vefútgáfu líkt og í fyrra.
Dagskráin var ekki af verri endanum en þarna voru samankomin helstu nöfnin í þessum geira og sannkölluð hátíð fyrir þá sem hafa áhuga á og sinna verkefnum tengdum mannvirkjagerð og umhverfismálum. Fyrir þá sem misstu af ráðstefnunni þá er hægt að nálgast upptökur og glærur af öllum fyrirlestrunum á eftirfarandi vefslóð.