25. október 2021

Umsvif á íbúðamarkaði minnka – fáar íbúðir til sölu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fjöldi kaupsamninga um húsnæði hefur verið að dragast saman undanfarna mánuði. Eftir að hafa náð hámarki í mars með tæplega 1.700 kaupsamningum þá hefur fjöldi kaupsamninga verið að dragast saman milli mánaða, sérstaklega ef litið er á árstíðarleiðréttar tölur. Í september voru gefnir út 1.100 samningar um íbúðarhúsnæði samkvæmt Þjóðskrá Íslands, það er þó örlítil aukning frá mánuðinum á undan en þá var fjöldi þeirra 974 en í september í fyrra voru þeir hinsvegar 1.442.

Þótt um aukningu sé að ræða á milli mánaða þá ef leiðrétt er fyrir árstíðarsveiflum þá fækkar samningunum eins og sést á myndinni hér að neðan, súlurnar sýna fjölda samninga í hverjum mánuði en svarta línan árstíðarleiðrétta leitni. Umsvif á fasteignamarkaði eru því orðin nær því sem gerist í eðlilegu árferði. Samdráttur í fjölda kaupsamninga má einkum reka til þess hve fáar íbúðir eru til sölu en þó er einnig mögulegt að meira jafnvægi sé að komast á milli framboðs og eftirspurnar eftir miklar hækkanir á íbúðaverði og aðgerðir Seðlabankans. Þessar aðgerðir og hækkun íbúðaverðs eru til þess fallnar að draga úr eftirspurn eftir íbúðum.

Allt frá því í maí 2020 hefur fjöldi íbúða til sölu dregist hratt saman. Nú eru rétt tæplega 650 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu en þær voru rúmlega þrefalt fleiri þegar mest lét í maí 2020. Þá hefur íbúðum til sölu einnig fækkað hratt í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins á undanförnum mánuðum og rúmlega helmingast frá því í maí á þessu ári.

Því er nokkuð ljóst að minni umsvif má rekja til þess að skortur er á framboði en ekki vegna þess að eftirspurnin eftir íbúðum hafi minnkað. Það er enn teikn á lofti um að eftirspurnin sé mikil og má þar nefna töluverðar íbúðaverðshækkanir, stuttan sölutíma eigna og hátt hlutfall íbúða sem fara á yfirverði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS