23. júní 2025
25. júní 2025
Umsóknarviðmót byggingarleyfa í Fljótsdalshreppi komið í loftið
Fljótsdalshreppur hefur bæst við notendahóp umsóknarviðmóts byggingarleyfa hjá HMS. Þetta er mikilvægt skref í þeirri vegferð að samræma og einfalda umsókn og útgáfu byggingarleyfa hjá öllum sveitarfélögum á landinu og stuðla að vandaðri mannvirkjagerð til framtíðar. Með beinu aðgengi að reglulega uppfærðum gögnum um byggingarleyfisumsóknir og afgreiðslu þeirra fæst stórbætt yfirsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi.
Kynntu þér allt um verkefnið Byggingarleyfi á Íslandi allt á einum stað.