26. júní 2026

Umsóknarfrestur vegna stuðnings við brunaprófanir rennur út 30. júní

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Umsóknarfrestur vegna stuðnings Burðar við flutning brunahólfandi innihurða til brunaprófana hjá DBI í Danmörku rennur út 30. júní 2026
  • Brunaprófanir hjá faggiltum prófunarstofum eru lykilforsenda öryggis og áreiðanleika byggingarvara
  • Burður styður íslenska framleiðendur með flutningi hurða til Danmerkur og aðgengi að brunaprófunum hjá DBI

Íslenskir framleiðendur brunahólfandi innihurða sem vilja nýta sér stuðning Burðar við flutning innihurða til brunaprófana hjá DBI (Danish Institute of Fire and Security Technology) í Danmörku þurfa að senda beiðni á burdur@hms.is eigi síðar en 30. júní 2026.

Þeir framleiðendur sem þegar hafa sótt um og fengið staðfestingu þurfa ekki að sækja um aftur.

Brunaprófanir hjá faggiltum prófunarstofum eru lykilforsenda þess að hægt sé að staðfesta eiginleika byggingarvara og tryggja að þær uppfylli kröfur um öryggi og gæði.

Stuðn­ing­ur Burð­ar

Burður er í samstarfi við DBI og felst stuðningurinn meðal annars í því að:

  • Annast flutning brunahólfandi hurða frá Íslandi til Danmerkur
  • Tryggja aðgengi íslenskra framleiðenda að brunaprófunum hjá DBI
  • Tengja framleiðendur við ráðgjafa DBI eftir þörfum

Framleiðendur bera sjálfir kostnað af brunaprófunum.

Rétt er að árétta að umsókn um stuðning skuldbindur framleiðendur ekki til að nýta sér hann síðar á ferlinum.

Hlut­verk HMS í fram­kvæmd bruna­próf­ana

HMS gegnir leiðbeinandi hlutverki en veitir ekki ráðgjöf um framkvæmd brunaprófana. Framleiðendum er bent á að leita beint til DBI eða annarra sérfræðiráðgjafa vegna prófana.

Einnig er bent á Brunatæknifélag Íslands (BTÍ) sem þekkir vel til stuðningsins og fyrirkomulags brunaprófana.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS