20. júlí 2020

Umsókn um greiðsluhlé vegna Covid-19

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Íbúðalánasjóður býður lántökum áframhaldandi greiðsluhlé á íbúðalánum sínum vegna greiðsluerfiðleika í kjölfar Covid-19. Hægt er að sækja um allt að 6 mánaða greiðsluhlé og kemur þá fyrra greiðsluhlé vegna Covid-19 til frádráttar ef við á. Í greiðsluhléi felst að greiðslum er frestað í allt að 6 mánuði og afborgun og vöxtum bætt við höfuðstól án þess að lánstími lengist.

Skilyrði greiðsluhlés

  • Lántaki hafi verið í skilum með lán sín þann 1. febrúar 2020 og ekki með vanskil sl 12 mánuði.
  • Lántaki eða maki hafi orðið fyrir tekjuskerðingu vegna Covid-19 og sýni fram á gögn þess lútandi s.s. staðfestingu frá VMST, staðfestingu á uppsögn eða skertum tekjum í eigin rekstri vegna Covid-19.

Umsóknarferli

Hægt er að nálgast umsókn um greiðsluhlé vegna Covid-19 á mínum síðum. Skráning á mínar síður er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Ef umsókn er samþykkt er hún send til rafrænnar undirritunar lántaka. Hluti af umsóknarferlinu er greiðslumat HSM og er það umsækjendum að kostnaðarlausu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS