5. ágúst 2025
7. ágúst 2025
Um 895 milljónir í húsnæðisstuðning í júlí
HMS greiddi þann 1.ágúst síðastliðinn um 895 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í júlí. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um allt land og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Stuðningurinn skiptist í tvo meginflokka; almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.
Almennar húsnæðisbætur
Húsnæðisbætur, sem er stærsti hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. Í júlí greiddi HMS um 870 milljónir króna til um 16.500 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu þess mánaðar.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Í júlí voru greiddar um 25 milljónir króna til um 960 umsækjenda í Kópavogi og 85 umsækjenda í Skagafirði.