7. maí 2025
11. maí 2020
Tveggja milljarða umframeftirspurn sýnir að enn er skortur á hagstæðu leiguhúsnæði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS fékk umsóknir um 5,6 milljarða í stuðning til að reka hagkvæmar leiguíbúðir:
HMS fékk umsóknir um 5,6 milljarða í stuðning til að reka hagkvæmar leiguíbúðir:
20 ólíkir aðilar hafa áform um að byggja eða kaupa alls 774 Almennar íbúðir og leigja út í langtímaleigu á viðráðanlegu verði.
20 ólíkir aðilar hafa áform um að byggja eða kaupa alls 774 Almennar íbúðir og leigja út í langtímaleigu á viðráðanlegu verði.
11,7 milljörðum króna hefur verið úthlutað til slíkra leiguíbúða af hálfu ríkisins frá árinu 2016.
11,7 milljörðum króna hefur verið úthlutað til slíkra leiguíbúða af hálfu ríkisins frá árinu 2016.
Forstjóri HMS: „Þessi mikla umframeftirspurn bendir til þess að enn vanti hagkvæmar leiguíbúðir á markaðinn.“
Forstjóri HMS: „Þessi mikla umframeftirspurn bendir til þess að enn vanti hagkvæmar leiguíbúðir á markaðinn.“
Fyrirhuguð heildarfjárfesting í Almennum íbúðum gæti numið um 17 milljörðum vegna úthlutunar HMS á stofnframlögum á þessu ári. Íbúðirnar rísa um allt land.
Fyrirhuguð heildarfjárfesting í Almennum íbúðum gæti numið um 17 milljörðum vegna úthlutunar HMS á stofnframlögum á þessu ári. Íbúðirnar rísa um allt land.
Tveggja milljarða króna umframeftirspurn reyndist vera eftir fjárstuðningi til reksturs hagkvæmra leiguíbúða, svokallaðra Almennra íbúða, en frestur til að sækja um stofnframlög frá ríkinu rann út 29. apríl sl. Alls var sótt um stofnframlög til byggingar eða kaupa á alls 774 Almennum íbúðum fyrir 5,6 milljarða kr. til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem veitir stofnframlögin. Til úthlutunar að þessu sinni eru allt að 3,7 milljarðar og því ljóst að einungis hluti áformanna mun fá brautargengi.
Að mati forstjóra HMS sýnir þessi mikla umframeftirspurn eftir stofnframlögum að enn sé mikil þörf fyrir leiguíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir fólk sem uppfyllir skilyrði um tekju- og eignamörk Almennra íbúða.
Mun fjölga leiguíbúðum um allt land – flestar á höfuðborgarsvæðinuAlls bárust umsóknir um 35 verkefni frá 20 umsækjendum. Sótt var um stofnframlög til byggingar á 521 íbúð, kaupa á 248 íbúðum og til breytingar á húsnæði í eigu sveitarfélags í fimm íbúðir. Alls er sótt um stofnframlög í 18 sveitarfélögum um land allt en flestar íbúðirnar eiga að vera á höfuðborgarsvæðinu.
Leiguíbúðir hugsaðar fyrir námsmenn, tekjulága, fatlaða, aldraða og öryrkjaSamkvæmt umsóknum er fyrirhugað að byggja 279 íbúðir ætlaðar leigjendum undir tekju- og eignamörkum, 166 íbúðir fyrir námsmenn, 144 félagslegar íbúðir á vegum sveitarfélaga, 106 íbúðir fyrir öryrkja og fatlaða, 45 íbúðir til byggingar sértækra búsetuúrræða og 34 íbúðir fyrir aldraða.
Framkvæmdir upp á 17 milljarða með úthlutun ársinsFrá því fyrsta úthlutun stofnframlaga fór fram árið 2016 hefur HMS, áður Íbúðalánasjóður, úthlutað 11,7 milljörðum kr. í stofnframlög til byggingar og kaupa á 2.123 Almennum íbúðum. Ríki og sveitarfélög leggja bæði til stofnframlög til íbúðabygginganna og miðað við stofnframlög til úthlutunar má búast við að íbúðaframkvæmdir fyrir í kringum 17 milljarða kr. munu fara af stað eftir að tekin hefur verið ákvörðun um úthlutun.
---
Hermann Jónasson, forstjóri HMS: „Þessi mikla umframeftirspurn bendir til þess að enn vanti hagkvæmar leiguíbúðir á markaðinn. Um leið er jákvætt að sjá að það eru margir sem eru tilbúnir að byggja upp húsnæði og leigja út í langtímaleigu á hagkvæmu verði með stuðningi ríkis- og sveitarfélaga. Við vitum að það eru tekjulægri hóparnir sem eiga erfiðast uppdráttar á húsnæðismarkaði. Þeir búa við meira óöryggi en aðrir og greiðsla húsaleigu, eins og hún er á almennum markaði, er þeim þyngri byrði en öðrum hópum. Með lögum um almennar íbúðir sem sett voru árið 2016 getum við nú tryggt þeim öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði."
Hvað eru Almennar íbúðir?
Almennar íbúðir sem eru leiguíbúðir sem njóta sérstaks stuðnings ríkis og sveitarfélaga. Aðilar sem vilja reka slíkt húsnæði sækja um stofnframlög til HMS og til sveitarfélaga. Þeir sjá síðan sjálfir um rekstur og útleigu íbúðanna til hópa sem uppfylla skilyrði laganna. Óheimilt er að reka slíkt húsnæði í hagnaðarskyni og ef selja á íbúðirnar þarf fyrst að endurgreiða stofnframlögin sem veitt voru. Uppgreidd stofnframlög renna í sérstakan sjóð sem gert er ráð fyrir að verði á endanum nægilega stór til að úr verði sjálfbært kerfi á húsnæðismarkaði. Sjóðurinn geti til framtíðar veitt fé til uppbyggingar á fleiri almennum íbúðum. HMS auglýsir árlega eftir umsóknum um stofnframlög. Stofnuninni er heimilt að auglýsa oftar, ef því fjármagni sem er til úthlutunar hvert ár er ekki öllu úthlutað eftir eina auglýsingu.
---
Nánari upplýsingar veitir Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, í s: 440-6400.
Nánari upplýsingar um umsóknir um stofnframlög – 29. apríl 2020
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS