24. mars 2021

Tryggð byggð er nýr samstarfsvettvangur um stuðning til byggingar húsnæðis á landsbyggðinni

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vettvangurinn Tryggð byggð og skýrsla um húsnæðismál landsbyggðarinnar kynnt í Hofi í gær

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu nýtt verkefni Tryggð byggð á fundi í Hofi, Akureyri síðdegis í gær, en það á að stuðla að stóraukinni uppbyggingu íbúðarhúsnæðis utan suðvesturhornsins. Um er að ræða samstarfsvettvang allra þeirra sem koma að húsnæðismálum á landsbyggðinni. Í gegnum Tryggða byggð verður bætt aðgengi að upplýsingum um sérstök landsbyggðarlán, stofnframlög og byggðaframlög, samstarf við opinbera leigufélagið Bríeti og stuðning sem HMS veitir á hönnunar- og undirbúningsstigi.

Fundurinn var vel sóttur af sveitarstjórnarfólki á Norðurlandi og fulltrúum byggingaraðila. Nýr vefur verkefnisins var jafnframt opnaður en þar má skoða á korti allar þær íbúðir sem eru í byggingu um landið með stuðningsúrræðum Tryggðar byggðar.

Þá var á fundinum kynnt ný skýrsla um þróun húsnæðismarkaðar utan suðvesturhornsins. Þar kemur fram að stöðnun hafi ríkt í húsnæðismálum landsbyggðarinnar á löngum köflum en að núverandi uppbyggingaráform, sem séu umtalsverð, megi meðal annars skýra með tilkomu nýrra stuðningskerfa ríkis og sveitarfélaga.

Í skýrslunni, sem unnin var af hagdeild Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), er fjallað um stöðu húsnæðismála á landsbyggðinni og hvernig aðgerðir stjórnvalda síðustu ár hafa. Húsnæðið sem fólk býr í utan suðvesturhornsins er mun eldra, eins og má sjá á meðfylgjandi mynd, en síðustu tvö ár hafa farið af stað framkvæmdir við yfir 400 íbúðir á landsbyggðinni og heildarfjárfesting vegna þessara verkefna er tæpir 10 milljarðar.

 

Verkefnið Tryggð byggð á að kynna möguleikana sem nú eru fyrir hendi en voru ekki áður til að endurnýja og byggja nýtt húsnæði á landsbyggðinni með stuðningi ríkisins og sveitarfélaga á hverjum stað. Markmiðið er að tryggja að fólk geti flutt út á land í leit að atvinnu, eða af öðrum ástæðum, og fengið húsnæði við hæfi. Samkvæmt  greiningu  HMS  frá  árinu  2019  er  byggingarkostnaður  hærri  en  húsnæðisverð  í  77% sveitarfélaga á landinu. Bilið á milli byggingarkostnaðar og kaupverðs hefur farið minnkandi á milli ára, en víða getur vantað talsvert upp á svo að endar nái saman.

Lengi lítið verið byggt á landsbyggðinni og meðalaldur íbúðastofnsins víða orðinn ansi hárÍ skýrslunni kemur fram að þróunin hafi lengi verið á þá leið að hlutfallslega mun meira sé byggt á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. „Ýmsir þættir hafa valdið því að uppbygging á landsbyggðinni hefur verið sáralítil í samanburði við höfuðborgarsvæðið. Helstu ástæður má rekja til þess að víða á landsbyggðinni stendur söluverð eigna ekki undir byggingarkostnaði, seljanleiki eigna er minni og fólksfækkun hefur verið í sumum sveitarfélögum sem veldur minni eftirspurn. Á sama tíma hefur fjölgun verið í öðrum sveitarfélögum sem hefur skapað húsnæðisskort. Þá hafa lánastofnanir haft minni áhuga á að lána til íbúðakaupa og íbúðauppbyggingar á landsbyggðinni. Þessir þættir hafa valdið því að lítið hefur verið byggt á landsbyggðinni og víða er meðalaldur íbúðastofnsins orðinn ansi hár,“ segir í inngangi skýrslunnar.

Dæmi um árangur: Blönduós og VopnafjörðurÍ skýrslunni er tala um að Blönduós sé dæmi um hvar úrræðin hafi skilað góðum árangri. Þar var húsnæðismarkaðurinn mjög óvirkur yfir langt skeið og ekkert var byggt á svæðinu á tímabilinu 2008-2018. Árið 2018 fór að draga til tíðinda í kjölfar uppbyggingar gagnavers, en þá sótti byggingarverktaki í samstarfi við sveitarfélagið um að byggja fimm íbúðir og fékk til þess landsbyggðarlán frá HMS. Mikil eftirspurn var eftir íbúðunum sem voru ætlaðar  ýmist  til  sölu  eða  til  útleigu  og  var  því  sótt  um  að  byggja  fimm  íbúðir  til  viðbótar  sem  eru  í undirbúningi  um  þessar  mundir.  Einnig  er  til  umfjöllunar  umsókn  um  stofnframlög  til  uppbyggingar leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalága . Húsnæðismarkaðurinn á Blönduósi hefur því á örfáum árum farið úr því að vera mjög kalt svæði yfir í að þar sé verið að byggja um tíu nýjar íbúðir.  Sama var uppi á teningnum á Vopnafirði en þar voru einungis byggðar tvær íbúðir á tímabilinu 1999-2020 og  meðalaldur  íbúða  því orðin  verulega hár.  Árið  2019 var sótt  um stofnframlag  til  uppbyggingar á  sex nýjum leiguíbúðum og þar að auki var sótt um lögaðilalán til uppbyggingar á tveimur íbúðum til viðbótar eða alls átta íbúðir. Byggingarframkvæmdir þessara íbúða eru komnar vel á veg; sumar þeirra eru þegar komnar í notkun en gert er ráð fyrir að aðrar verði tilbúnar til notkunar síðar á þessu ári.

 

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS