11. nóvember 2025
11. nóvember 2025
Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Vesturlandi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Fimmtudaginn 13. nóvember verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Vesturlandi. Fundurinn verður haldinn í Tónlistarskólanum, Dalbraut 1 á Akranesi, kl. 12 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.
Dagskrá
- Staðan á Akranesi
Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar - Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS - Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað
Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS
Fundarstjóri verður Ragnar Sæmundsson formaður samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




