17. nóvember 2025

Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Austurlandi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fimmtudaginn 20. nóvember verður haldinn opinn fundur um þróun of framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Austurlandi. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Austurbrúar, Búðareyri 1 á Reyðarfirði, kl. 11:45 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Austurbrú. 

Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stafræn byggingarleyfi. 

Dagskrá 

  • Staðan í Fjarðabyggð
    Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar 
  • Staða íbúðauppbyggingar 
    Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS 
  • Stafræn byggingarleyfi 
    Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS 

 Fundarstjóri verður Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. 

 

Húsið opnar kl. 11:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn. 

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS