12. júní 2025

Tímamótasamningur um verklega kennslu slökkviliðsmanna í útkallsstarfi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Brunamálaskólinn, sem starfræktur er af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og menntar slökkviliðsmenn um allt land, hefur nú í fyrsta sinn gert langtímasamning við Brunavarnir Árnessýslu um verklega kennslu í grunnnámi slökkviliðsmanna í hlutastarfi. Samningurinn, sem nær til þriggja ára, markar tímamót í samstarfi þessara aðila og veitir samstarfinu formlegan og traustan grunn til framtíðar.

Samstarfið byggir á góðri reynslu sem hefur þróast frá árinu 2021. Með nýjum samningi er því lyft upp á næsta stig með skýrari framtíðarsýn og markvissari framkvæmd námsins. Markmiðið er að efla hæfni og viðbragðsgetu slökkviliða með samræmdri, faglegri og vandaðri verklegri þjálfun.

Verkleg námskeið verða haldin í lotum og fara fram víðsvegar um landið. Námskeiðin taka til breytilegra þátta lögbundinna verkefna slökkviliða, þar á meðal slökkvistarfsemi, björgun fastklemmdra og viðbrögð við mengunaróhöppum. Slík þjálfun er lykilatriði í öryggi og viðhalda fagmennsku á sviði brunavarna á Íslandi. Með samningnum er jafnframt tryggður stöðugleiki og gæði í verklegri þjálfun, sem mun nýtast bæði slökkviliðsmönnum og samfélaginu öllu.

Brunavarnir Árnessýslu hafa tekið virkan þátt í þróun og framkvæmd verklegrar þjálfunar fyrir hönd Brunamálaskólann. Þekking og reynsla þeirra hefur reynst afar dýrmæt í uppbyggingu námsins og nú fær það samstarf formlegt og skýrt umboð til næstu þriggja ára.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS