26. júní 2020

Tilkynning frá HMS vegna brunans á Bræðraborgarstíg

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur hafið rannsókn vegna brunans á Bræðraborgarstíg og er teymi frá stofnuninni nú á vettvangi. Stofn­un­in rann­sak­ar alltaf mál þegar mannskaði verður í eldsvoða.

Rannsókn stofnunarinnar er ekki sakamálarannsókn heldur beinist hún að slökkvistarfinu og aðstæðum í húsinu. Verið er að skoða teikn­ing­ar að hús­inu, sem marg­ar eru mjög gaml­ar, en hluti þess var frá árinu 1906. Nýj­ustu teikn­ing­ar af húsinu eru frá alda­mót­um en þær hafa verið upp­færðar til sam­ræm­is við legu rýma í bygg­ing­unni.

Rann­sókn HMS gæti tekið nokkra mánuði. Rétt er að taka fram að þó hún sé unnin í sam­starfi við lög­reglu og slökkvilið þá er um að ræða sjálfstæða rann­sókn.  

Þá hefur Hermann Jónasson, forstjóri HMS, boðað slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins og byggingafulltrúann í Reykjavík til fundar hjá stofnuninni næstkomandi þriðjudag til að fara yfir þau verkefni sem hafa verið í gangi varðandi eftirlit með aðstæðum fólks sem býr í atvinnuhúsnæði og öðru ósamþykktu og óviðunandi húsnæði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS