10. febrúar 2026
11. febrúar 2026
Þrettánda hver íbúð gekk kaupum og sölu í fyrra
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Að meðaltali 966 kaupsamningum var þinglýst í hverjum mánuði árið 2025
- Alls gengu um 7,4 prósent fullbúinna íbúða kaupum og sölu í fyrra
- Hlutfallslega mest virkni hefur verið á Suðurnesjum undanfarinn áratug
Um það bil 11.600 kaupsamningum var þinglýst á árinu 2025, en þeir vörðuðu kaup á tæplega 12 þúsund eignum. Hlutfall seldra íbúða af íbúðastofni lækkaði milli ára á landsvísu, en lækkunina má að stórum hluta rekja til Grindavíkuráhrifanna árið 2024. Árið 2025 mældist hlutfallið hærra á höfuðborgarsvæðinu en í öðrum landshlutum í fyrsta sinn síðan árið 2014, en virknin hefur verið hlutfallslega mest á Suðurnesjum undanfarinn áratug.
Tæplega 12 þúsund eignir seldar árið 2025
Fullbúnar íbúðir í árslok 2025 voru rétt rúmlega 162 þúsund talsins á landinu öllu. Sem fyrr segir gengu um 12 þúsund íbúðir kaupum og sölu á síðasta ári, sem samsvarar 7,4% af íbúðastofni landsins.
Hlutfall seldra íbúða af íbúðastofni var 8,8% árið 2024 og því lækkaði hlutfallið á milli ára. Ef litið er fram hjá kaupum Þórkötlu á eignum í Grindavík væri hlutfallið nær 8,2%, en um 7,7% ef jafnframt væri litið fram hjá kaupum Grindvíkinga á fasteignum árið 2024.
Hlutfallslega mest virkni á Suðurnesjum undanfarinn áratug
Sé hlutfall seldra íbúða af íbúðastofni skoðað eftir landshlutum kemur í ljós að virkni fasteignamarkaðar hefur að jafnaði verið hlutfallslega mest á Suðurnesjum undanfarinn áratug, en einnig talsverð á Suðurlandi. Hlutfallið var að meðaltali 10,9% (10,4% án Þórkötlu) á Suðurnesjum á tímabilinu, en 8,8% á Suðurlandi.
Hátt hlutfall seldra íbúða af íbúðastofni á Suðurnesjum og Suðurlandi skýrist af kröftugri fólksfjölgun á svæðinu og mikilli uppbyggingu nýrra íbúða. Frá árinu 2016 hefur íbúum til að mynda fjölgað hlutfallslega mest á Suðurnesjum og Suðurlandi, eða í kringum 33% samanborið við 19% fjölgun á landsvísu. Jafnframt hefur fullbúnum íbúðum fjölgað mest á Suðurlandi (38%) og næstmest á Suðurnesjum (24%) á tímabilinu, samanborið við um 22% fjölgun fullbúinna íbúða á landsvísu.
Á nýliðnu ári, 2025, var hlutfall seldra íbúða af íbúðastofni um 7,7% á höfuðborgarsvæðinu, sem er einungis litlu hærra en á Suðurnesjum og á Suðurlandi (7,6%). Þetta var í fyrsta skipti síðan árið 2014 sem hlutfallið var hæst á höfuðborgarsvæðinu, en það hefur verið að meðaltali 8,4% frá árinu 2016.
Nánar verður fjallað um seldar íbúðir sem hlutfall af íbúðastofni á höfuðborgarsvæðinu og í alþjóðlegu samhengi í næstu mánaðarskýrslu HMS sem kemur út á fimmtudaginn í næstu viku. Skýrslan verður kynnt á opnum fundi í húsakynnum HMS á útgáfudegi, en einnig verður hægt að fylgjast með í streymi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




