13. maí 2025
27. ágúst 2021
Þann 1. september munu taka gildi nýjar orkumerkingar ljósgjafa
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vegna tækniþróunar og vegna þess að munurinn á milli A+, A++ og A+++ er ekki augljós neytendum auk þess sem flestar vörur á markaði eru í þremur efstu flokkunum, verður einfaldari orkumerkimiði með kvarðanum A – G tekinn upp að nýju. Vara í orkunýtniflokki A+++ mun til dæmis að óbreyttu verða í orkunýtniflokki B eftir breytinguna.
Vegna tækniþróunar og vegna þess að munurinn á milli A+, A++ og A+++ er ekki augljós neytendum auk þess sem flestar vörur á markaði eru í þremur efstu flokkunum, verður einfaldari orkumerkimiði með kvarðanum A – G tekinn upp að nýju. Vara í orkunýtniflokki A+++ mun til dæmis að óbreyttu verða í orkunýtniflokki B eftir breytinguna.
Hvaða mikilvægu nýju atriði koma fram á nýju orkumerkimiðunum?
- Nýju merkimiðarnir verða með samræmdum orkunýtniflokkum, A til G, fyrir allar vörur. Orkunýtniflokkarnir A+++/A+ munu hverfa.
- Merkimiðarnir verða tengdir við gagnagrunn með QR-kóða. Gagnagrunnurinn veitir neytendum, söluaðilum og markaðseftirlitsstjórnvöldum frekari upplýsingar um allar orkumerktar vörur.
Vakin er athygli á því að söluaðilar hafa 14 virka daga til að skipta út nýja orkumerkimiðanum í vefverslunum.
Hér má finna yfirlit yfir hvenær uppfylla þarf skilyrði:
Með nýrri reglugerð eru settar kröfur um merkingar og veitingu viðbótaupplýsinga um ljósgjafa með eða án innbyggðs stýrisbúnaðar. Kröfurnar gilda einnig um ljósgjafa sem settir eru á markað í umlykjandi vöru.
Sjá nánar nýja reglugerð (ESB) 2019/2015
Hvað eru ljósgjafar?
Ljósgjafi er rafknúin vara sem ætlað er að gefa frá sér ljós eða, ef ljósgjafinn er ekki glóðarpera, sem hægt er að stilla til að gefa frá sér ljós, eða hvorutveggja, með alla eftirfarandi ljósfræðilega eiginleika:
Liskuhnit x og y á sviðinu:
a) 0,270 < x < 0,530 og
-2,3172 x2 + 2,3653 x -0,2199 < y < -2,3172 x2 + 2,3653 x – 0,1595,
b) Ljósstreymi < 500 lúmen á hvern mm2 yfirborðs flatar sem varpar ljósi,
c) Ljósstreymi á milli 60 og 82000 lúmen,
d) Litarendurstuðull (CRI) > 0,
Ljósgjafar notast við glóðarþráð, flúrljómun, háþrýsta úrhleðslu, ólífrænar ljósdíóður (LED) eða lífrænar ljósdíóður (OLED) eða samsetningar þeirra sem tækni til lýsingar.a<x58hiiv4h
Háþrýstir natríumljósgjafar (HPS) sem ekki uppfylla skilyrði a) teljast ljósgjafar.
Eftirfarandi teljast ekki ljósgjafar:
- Ljósdíóðukubbar eða ljósdíóðuflögur,
- Ljósdíóðuhylki,
- Vörur sem innihalda ljósgjafa sem hægt er að fjarlæga úr þeim.
- Hlutar sem gefa frá sér ljós sem eru í ljósgjafa sem ekki er hægt að fjarlægja úr ljósgjafanum til að sannprófa sem ljósgjafa.
Hér má nálgast fræðsluefnið um nýjar orkumerkingar ljósgjafa á pfd formi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS