3. júní 2026
4. júní 2026
Tæplega þrír af hverjum tíu einstæðum foreldrum fengu húsnæðisbætur í maí
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Um 29 prósent einstæðra foreldra á Íslandi fengu húsnæðisbætur í maí
- Langflestir þeirra búa í leiguhúsnæði sem er í einkaeigu
- HMS greiddi 970 milljónir í húsnæðisstuðning í maí
HMS greiddi alls 970 milljónir króna í húsnæðisstuðning til 17.710 heimila á leigumarkaði vegna leigu í maí 2026. Einstæðir foreldrar voru um 21 bótaþega í mánuðinum en gera má ráð fyrir að um 29 prósent allra einstæðra foreldra á landinu þiggi húsnæðisbætur samkvæmt upplýsingum sem unnar hafa verið upp úr húsnæðisbótagrunni HMS.
Fimmtungur þeirra sem þáðu húsnæðisbætur í maí eru einstæðir foreldrar
Af þeim sem fengu greiddar bætur í mánuðinum voru um 3.653 einstæðir foreldrar, eða tæplega 21 prósent. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar eru um 12.639 einstæðir foreldrar á landinu og því má gera ráð fyrir að um 29 prósent allra einstæðra foreldra á Íslandi hafi þegið húsnæðisbætur í maí.
Stór hluti einstæðra foreldra á Íslandi þiggur þannig ekki húsnæðisbætur, en þar að baki kunna að liggja ýmsar skýringar. Húsnæðisbætur eru til að mynda ekki greiddar til þeirra sem búa í eigin húsnæði, en ekki liggur fyrir hversu hátt hlutfall einstæðra foreldra er á leigumarkaði á Íslandi. Þá kann að vera að einhverjir einstæðir foreldrar séu með of háar tekjur eða eignir til að eiga rétt á húsnæðisbótum.
Einstæðir foreldrar búa að stærstum hluta í leiguhúsnæði í einkaeigu
Stærstur hluti einstæðra foreldra sem þiggur húsnæðisbætur býr í húsnæði í einkaeigu, eða um 79 prósent, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Minni hluti býr í félagslegu húsnæði og afar fáir búa í öðrum búsetuformum. Þetta bendir til þess að stuðningurinn nýtist að mestu leyti til heimilum sem leigja íbúðir í einkaeigu.
Húsnæðisbætur eru þannig mikilvægur stuðningur fyrir um þriðjung einstæðra foreldra, sérstaklega þá sem leigja íbúðir sem eru í einkaeigu. Hins vegar þiggur stór hluti einstæðra foreldra ekki húsnæðisbætur sem getur haft ýmsar skýringar sem vert er að skoða nánar.
Tæpur milljarður króna var greiddur í húsnæðisstuðning vegna leigu í maí
Þann 1. júní síðastliðinn greiddi HMS um 970 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í maí. Greiðslurnar styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.
Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka, annars vegar almennar húsnæðisbætur og hins vegar sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga.
Stærsti hluti greiðslna í maí var vegna almennra húsnæðisbóta. HMS greiddi tæpar 936 milljónir króna til um 17.710 heimila í almennar húsnæðisbætur. Þetta samsvarar um þriðjungi af áætlaðri stærð leigumarkaðarins, en HMS áætlar að hann telji um 50 þúsund heimili.
Auk þess greiddi HMS sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í maí voru greiddar tæpar 34 milljónir króna til 1.101 heimila í Kópavogi og 87 heimila í Skagafirði. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er honum ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




