4. nóvember 2025
4. nóvember 2025
Tæpar 926 milljónir í húsnæðisstuðning í október
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS greiddi þann 31. október síðastliðinn um 926 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í október. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um allt land og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Stuðningurinn skiptist í tvo meginflokka; almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.
Almennar húsnæðisbæturs
Húsnæðisbætur, sem er stærsti hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. HMS greiddi um 900 milljón króna til um 17.162 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í októbermánuði.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru um 26 milljónir króna til um 993 umsækjenda í Kópavogi og 86 umsækjenda í Skagafirði vegna leigu í október.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




